02júlí

Loka bloggið!!

Jæja það er heldur betur kominn tími á smá færslu á þessari síðu. En ég hef hér með ákveðið að halda mig bara við barnalandssíðuna.Og ef að ykkur langar í lykilorðið þá er bara að spyrja.

Annars er allt ágætt að frétta af þessum bæ. Það varð samt áfall í fjölskyldunni föstudaginn síðastliðinn þegar hann elsku afi minn, hann Guðmundur, ákvað að kveðja þennan heim okkar. Hann hafði átt við löng og erfið veikindi að stríða og var þetta því kærkomin hvíld fyrir hann elsku afa minn. En hans er sárt saknað og synd að litla krílið mitt fái ekki þess heiður aðnjótandi að kynnast yndislegum og góðum manni.
Hann verður jarðaður núna um helgina og förum við því suðureftir á föstudaginn til þess að hjálpa til.

Annað í fréttum er að morgundagurinn minn verður minn síðasti á Hörðuvöllum í bili, það er lokað eftir föstudaginn en vegna afa þá verður morgundagurinn minn síðasti. Er búin að baka smá handa liðinu mínu þarna á leikskólanum mínum. Ég á eftir að sakna barnanna minna mjög mikiðFýldurverð að knúsa mörg kríli á morgun!
En svo komst frökenin inn í HÍ en ég ætla að fara byrja í leikskólakennaranum,byrja í einum áfanga og svo bæti ég við mig þegar krílið mitt fer að stækkar! Hlakka mikið til að fá molann minn í hendurnar, hann(krakkinn) er farinn að láta mikið fyrir sér fara. En það stoppar mig svo sannarlega ekki í því að fara til útlanda. Næsta mánudag er ég að fara ásamt múttu og pabba til Costa Del Sol í viku. Get ekki beðið eftir því að komast aðeins í burtu með familíunni, bara synd að hann Bjössi minn komist ekki með! En það bíður bara betri tíma!

Annars þá verður þetta síðasta færslan á þessari síðu í bili, nú ætla ég að einbeita mér af bumbubúanum mínum og síðu molans míns.

KV. Svanhildur
02. júlí 2008 klukkan 23:09
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
Engin athugasemd
14maí

Eigum við að ræða þetta eitthvað!??!?????????

Guð hvað ég er brjáluð!!!!!!!!!!!!!!!

Héðan í frá hef ég ákveðið að selja bílinn minn og kaupa mér vespu! Þegar barnið kemur þá ætla ég að kaupa mér svona baby-björn poka þar sem barnið verður. Bensínkostnaðurinn á þessu heimili er nægur þar sem hann Bjössi keyrir töluvert á milli í vinnuna. Svo hækkar bensínið orðið jafn oft og maður blikkar augunum! Þetta gengur ekki lengur! Við skötuhjúin fórum að taka besnín áðan og á meðan við vorum að dæla á bílinn þá BAMM!!!!! hækkaði það um 2kr. Og þar með er líterinn kominn í rúmar 160kr!! EIGUM VIÐ AÐ RÆÐA ÞAÐ E-H!!!Öskrandi

Varð bara aðeins að pústa! Fjúff....líður aðeins betur. Kannski ætti barnið að geta sofnað núna þar sem ég er búin að vera óstjórnlega upptjúnnuð síðan ég tók bensín!

Annars er allt ágætt að frétta, er enn ólétt og hef það ágætt!

See you...

Over and out

The Gas-gloop!
14. maí 2008 klukkan 21:21
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
3 athugasemdir
16apríl

Moment of truth:D

Jæja þá erum við komin úr 20 vikna sónarnum...allt kom vel út. Krílið var voðalega rólegt og þurfti hún að ýta aðeins við því svo að það myndi nú snúa sérBrosandi Algjör draumur hehe...fengum 3 sónarmyndir sem ég set bráðlega á barnalandssíðuna. En það var voðalega gaman að sjá litla krílið...eða það er kannski ekkert svo lítið miðað við 12.vikna sónarinn! Maður er alveg svakalega stoltur núnaGlottandi En eftir þennan sónar var haldið í annan, en fórum til hjartalæknis í ómun á hjartanu hjá litla krílinu...bara að a.t.h hvort að það væri nokkuð með svipaðan hjartagalla og múttan. Það kom nú allt vel út úr því en ég fer samt aftur eftir 4vikur...bara að leyfa því að stækka aðeins meira! Græðum þá a.m.k auka sónarHlæjandi
Annars vorum við Bjössi að panta í þrívíddarsónar og förum við í hann 3júní...þá er bara bíða.

Ég bið annars bara að heilsa og sendi marga knúsa út til Erlu minnar...tel niður dagana! Er að græja það að fá mér skype! Kominn tími til, er það ekki ErlaÓákveðinn

En fyrir þá sem vilja fylgjast með litla krílinu okkar þá er slóðin
www.agustbaun.barnaland.is það er lykilorð á síðuna, þið sendið þá bara email ef að þið hafið áhuga á því að fá þaðBrosandi
16. apríl 2008 klukkan 12:07
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
2 athugasemdir
12apríl

Ein færsla fyrir Erlu mína:)

Jæja þá held ég að það sé kominn tími á nýtt blogg...svo hún Erla fái nú smá updateBrosandi  Annars er lítið að frétta af litlu familíunni. Annað en ég varð árinu eldri 2.apríl síðastliðinn og eyddi ég bara afmælisdeginum í Grindavík hjá múttu og pabba því að húsbóndinn á mínu heimili var staddur úti í Portúgal. En það var bara mjög kósý, enda hefði ég aldrei getað framreitt eins góða steik og mútta gerði!! En Bjössi keypti nú smá dót á litla krílið og er það búið að eignast sitt fyrsta NIKE skópar....strax orðin merkjafrík af foreldrunum! Hehe ég segi nú bara svona...en maður er nú aðeins farinn að leika sér að kaupa á litlu snúlluna! Ein kona í vinnunni var einmitt að gefa okkur skiptiborð...en það er ekkert smávegis flott! Flott að fá svona hluti...

Annars er heilsan hjá mér ekki alveg búin að vera upp á sitt besta. Og sagði ég við mömmu um daginn að það fengi að líða ansi langur tími þar til ég myndi gera þetta aftur, en þá sagði mamma að ég myndi gleyma því um leið og ég fengi krílið í hendurnar. Við skulum vona þaðÓákveðinn En ég byrjaði síðustu helgi að fá verki í magann sem að versnuðu þegar dagarnir liðu. Eftir vinnu á þriðjudaginn stóð okkur ekki á sama og fórum upp á kvennadeild en þar endaði ég í allsherjar tékki. Ljósmóðirin leitaði heillengi að hjartslættinum og prufaði nokkur tæki en ekkert gekk! Þið getið ímyndað ykkur hvað það var erfitt að liggja og vita ekki neitt, en ég endaði því í sónar og þar var litla krílið og það bara vinkaði mömmu sinni! Algjör púkiHissa En eftir dágóðan tíma á kvennadeildinni þá var ég send heim. Verkirnir minnkuðu ekkert þannig ég ákvað að fara til ljósmóðurinnar minnar uppi á Sólvangi en þar kom í ljós að ég er komin með svona mikla grindargliðnun. En þá voru verkirnir allir út frá því, en það var gott að vita að það væri ekki alvarlegra en það, en óþægilegt þó. Ljósan heimtaði að ég mynd minnka við mig vinnu og færi svo til sjúkraþjálfara...þannig að nú eru vinnudagarnir hjá mér frá 12-17. Svaka spennóFýldur EN þar er ekki sagan öll...svo var hringt í mig í gær frá kvennadeildinni og þá kom í ljós að ég er, sem kallast, GBS beri(segi þér betur frá þessu þegar ég er komin með SKYPE Erla):) og gæti það verið stórhættulegt hefði það ekki uppgvötast. Fyrir barnið þ.e.a.s en þar sem þetta uppgvötaðist þá fæ ég pensilín í æð í fæðingunni og öllum öðrum fæðingum mínum ef fleiri verða!

En þetta er þá að frétta af mér...svo er bara 20vikna sónarinn næstkomandi miðvikudag. Ég get ekki beðið eftir því að sjá litla krílið mitt...því af því litla sem ég sá af því síðastliðinn þriðjudag þá var dúllan kannski ekkert svo lítil ennþáUllandi


Læt í mér heyra eftir sónarinn þar sem ég upplýsi slóðina á barnalandssíðuna....eða fyrir þá fáu sem vita hana ekki heheh.

KV.Rassálfurinn
12. apríl 2008 klukkan 20:41
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
Engin athugasemd
26mars

Komin tími á smá blogg...

Jæja þessi leti mín gengur bara ekki lengur. Er búin að vera á leiðinni með blogg í háa herrans tíð og nú kemur eitt, hversu merkilegt það verður veit ég ekki...

Annars er bara allt gott að frétta héðan frá maður er í þann mund að jafna sig á kræsingum páskahátíðarinnar!! Barnið er held ég enn í sykursjokki...sem og ég! Páskarnir hjá manni þetta árið einkenndust af fermingarveislu og óragúa af matarboðum....við þutum á milli Grindavíkur og Hafnarfjarðar. En þeir voru bara mjög notalegir þetta árið, þó svo manni langaði nú voða í bjór og eina sígó!! En fórnir verður maður víst að færa hehehe...

En svo er hann Bjössi minn að fara yfirgefa mig í heila viku næstkomandi laugardag þar sem hann ætlar að skella sér í smá æfingarferð til Portúgal!! Það er eins gott fyrir hann að kaupa e-h flott handa mér þar sem hann ætlar sér að vera í órafjarlægð í burtu þegar ég á afmæli....aldeilis hugsað um mannUllandisegi svona!!

Annars finnst mér tíminn líða aldeilis hratt þessa dagana þar sem meðgangan er bara að verða hálfnuð!! Spáið í því, er að verða komin 18 vikur...En það er nú samt NÓG eftir..sem er ágætt því þá hef ég smá svigrúm til þess að slugsa með teppið sem ég er að hekla. Aldrei hef ég séð eins ljótt teppi, ætti frekar að vera flugnanet því það er svo götótt...en ég ÆTLA að klara það.
Svo erum við komin með barnalandssíðu sem að er nú  í vinnslu en ég upplýsi ykkur betur um hana þegar ég er búin í 20 vikna sónarnum 16.apríl....I PROMISE!


Lots and lots of love...

kv.strandarglopurinn
26. mars 2008 klukkan 19:24
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
4 athugasemdir
28febrúar

Fullkomið eins og mamman........HAHAHAH!!!!

Jæja ég þakka allar hamingjuóskirnar sem hafa verið að hellast yfir mann að undanförnuBrosandi En við ,eins og ég sagði í blogginu hér á undan, fórum í hnakkaþykktarmælinguna fimmtudaginn síðastliðinn, mamma var líka að fara til læknis stuttu seinna þannig ég bauð tilvonandi ömmunni að koma. En allavega þá var ekkert smávegis gaman að sjá breytinguna á litla krílinu okkar frá því í 8 vikna sónar. En bara til að gefa ykkur smá hugmynd um breytinguna þá var bumbubúinn 1,5cm í 8 vikna sónar en í þessum sónar þá var það orðið 11,2cm....búið að stækka svona aðeins á þessum rúma mánuðiBrosandi Ég vona bara að krílið ætli ekki að taka upp á því að vera e-h risi þar sem foreldrarnir eru svo sannarlega ekki þeir stærstu!! En bumbubúinn var bara að fleygiferð og það ætlar víst bara að koma í heiminn svakalega kurteist þar sem það vinkaði bara öllum(flott/ur á því) hehehe.... Við vorum alveg svakalega stolt og hvað þá tilvonandi amman! En eftir sónarinn þá fór ég í blóðprufu og fengum við svo að vita úr henni eftir helgi og niðurstöðurnar voru eins flottar og hægt var að fá. Þannig nú getum við andað rólegra!

Annað að frétta er það að við skötuhjúin vorum að kaupa okkur bíl...búin að losa okkur við ,,Tomma Typpatogara'' og erum komin á bíl sem er nú töluvert stærri! En við keyptum okkur Ford Focus station bíl....svaka kaggi! Þannig nú er komin fjölskyldubíllinn þá er bara að bíða eftir krílinu:) hehe!

Svo átti kallinn bara afmæli í gær....26 ára gamall! Djö... aldur er kominn á þetta! Maður þarf að fara yngja upp heheheh! En ég skellti í nokkrar kökur og nokkra heita rétti og viti menn, litla kjallaraholan okkar bara fylltist af gestum!!! Fegin var ég að vera búin að baka nokkrar kökur....en það var bara voðalega kósý, kom mér hreinlega bara á óvart hvað við komum mörgum hér inn:p Spurning um hvort það hafi verið heimsmet....njah, varla!

En annars er bara allt gott að frétta af stækkandi familíunni....allir svaka hressir og kátir!


Kær kveðja frá Bumbulínu og litla laumufarþeganum!
28. febrúar 2008 klukkan 19:34
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
7 athugasemdir
18febrúar

Friðurinn er úti:P

Jæja þá er friðurinn úti!!! Þegar ég blogga þá kommentar enginn svo þegar ég ákveð að taka mér smá pásu þá ákveður fólkið að kommenta! Hvar hafiði verið??? Það verður að viðhalda þessu ef að ég á að halda áfram að bloggaBrosandi 

Annars gengur lífið bara sinn vanagang og er alltaf nóg að gera hjá manni. Dýrka vinnuna mína....ætla einmitt að fara í KHÍ í haust í fjarnámi. Ætla að byrja á því að fara bara í einn áfanga, ætla að byrja á Þroskasálfræðinni þar sem það fylgir ekkert vettvangsnám þeim áfanga. En ég ætla að fara læra leikskólakennarann, bara svona svo að þið vitið!!

Í síðasta bloggi talaði ég um bíla- og íbúðarkaup en það hefur lítið skeð í þeim efnum. Íbúðarkaupin ætla að fá að bíða í e-h tíma þar sem þetta er bara svo svakalega dýrtTala af sérerfitt að byrja! En bílakaupin eru í vinnslu, við erum bara ekki búin að finna neinn sem okkur lýst vel á! En við ætlum að fara aðeins að stækka við okkur....Yarisinn er bara alltof mikil púttaÓákveðinnágætur, en pútta þó!

Aldrei þessu vant þá ætla ég að gera e-h af mér um helgina...við Bjössi erum að fara í afmæli á föstudaginn og svo annað á sunnudeginum. Efast nú samt sem áður að það verði e-h rífandi stemming á sunnudeginum þar sem það er 95 ára afmæli hjá langafa hans BjössaHlæjandiþrusualdur á kallinum!
Svo erum við að fara á árshátíð hjá Hafnarfjarðarbæ 1.mars næstkomandi. Bara brjálað að gera hjá manni, a.m.k miðað við undanfarna mánuði! En það er svo sem ástæða fyrir því...en ég hef verið veik mest allt árið. En þannig er mál með vexti að 2 dögum fyrir gamlárskvöld þá komst ég að því að ég væri ólétt!!! HA! JÁ, þið heyrðuð rétt.SaklausEngillinn er BOMMSaklaus Þetta var mikið sjokk en yndislegar fréttir engu að síður. En núna má maður víst fara segja frá þessu þar sem maður er LOKSINS kominn 3 mánuði. En ég á sem sagt að eiga mánaðarmótin ágúst september. Þannig núna er bara að bíðaÓákveðinn En ég fer einmitt næstkomandi fimmtudag í hnakkaþykktarmælinguna og bíðum við spennt eftir því að sjá breytinguna á krílinu okkar. Fórum síðast þegar ég var komin 8 vikur og þá var þetta bara eins og lítil rækja!!

En allavega.....Þá vitiði það!

Over and Out
                           THE BUMBO-GLOOP




18. febrúar 2008 klukkan 20:40
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
12 athugasemdir
22janúar

Já ég er á lífi!!!!!!!!!

Nei veriði nú sæl og blessuðBrosandiLong time no blogg....og ég gæti nú alveg lengt þessa pásu mína þar sem ég hef bara ósköp lítið að segja! En eftir þetta blogg þá ætla ég að taka smá pásu frá bloggheiminum til svona ca 15 febrúar....Smá pása!

En áramótin voru hin skemmtilegustu...mikil ölvun á liðinu og það var nú frekar fyndið:) Annars er margt á döfinni hjá okkur Bjössa núna ætlum að fara kaupa okkur annan bíl....og vonandi, ef allt gengur vel, þá ætlum við að reyna kaupa okkur íbúð! Erum að fara í greiðslumat á morgun þannig....wish me luckÓákveðinn 

Svo á ég svo einstaklega skemmtilega foreldra að þeir eru að skella sér til Costa Del Sol 7 júlí og gátu þau bara ekki hugsað sér að það yrði skemmtilegt án elstu dótturinnar og buðu þau því mér! En ég og Brynjar ætlum að kíkja í viku út til þeirra en mamma, pabbi og Helga Guðný ætla að vera í tvær vikur. Og ásamt þeim ætlar systir mömmu hún Helga og maðurinn hennar og dóttir. Svo ætlar sonur hennar Helgu...hann Hákon að koma líka í viku með henni frænku sinni! En ég verð umvafin karlmönnum þar sem ég verð með Brynjari og Hákoni í herbergi. Þetta verður æðislega gaman!

Annars hef ég ekki neitt að segja.....

Sjáumst í febrúar........

LUv ya Erla...

The ,,Missing you Erla''-Gloop
22. janúar 2008 klukkan 18:42
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
5 athugasemdir
26desember

2007-2008

Annállinn fyrir árið 2007


Jæja þá er enn eitt árið búið að fljúga frá manni..en maður er nú búinn að gera ýmislegt þetta árið. Búin að kynnast fullt af nýju og skemmtilegu fólki. En hérna er nú það helsta:

Jan
-Ég byrjaði að vinna í Arnarvík, í fiskislorinu með henni Jóhönnu...mikið um að spjalla þar!
Feb-Bjössi minn var 25 ára og fórum við í frekar skrautlega sumarbústaðarferð.
Apr-Ég varð 20 ára á árinu og hélt maður nú afmælispartý í tilefni þess og var nú einnig skrautlegur endir á því kvöldi.
Maí-Sagði upp í Arnarvík, því þá höfðum við Bjössi ákveðið að hefja sambúð;) Spennó!!
Júní-Hætti að vinna í fiskifjandanum og tók mér gott sumarfrí:P
Júlí-Sótti um vinnu í Hafnarfirðinum á leikskóla sem heitir Hörðuvellir og gafst jafnframt upp á því að vera í sumarfríi og tók að mér aukavinnu í moggaútburði....geggjað gaman(NOT)!!
Ágúst-Flutti í Hafnarfjörðinn til hans Bjössa....skemmtilegasta en jafnframt það mest erfiðasta sem ég hef þurft að gera á ævinni:) Upplifði líka eina skemmtilegustu Verslunarmannahelgi í langan tíma! Svo byrjaði ég líka í nýrri vinnu á leikskólanum.
September-Aðlagaðist nýrri vinnu og nýju fólki og var það æðislega fínt og hef ég eignast fullt af nýjum vinum:)
Október-Við Bjössi fórum til Glasgow með vinnunni hans og fórum því í okkar fyrstu utanlandsferð saman. Og var það svaka fjör!
Nóvember-Við Bjössi áttum ársafmæli og hann kom mér heldur betur á óvart og fór á skeljarnar. Ég sagði nei, að sjálfsögðu:p HEHE! Segi bara svona..
Desember-Var í fyrsta skipti sett upp jólatré á Jófríðarstaðarveginum og það passaði inn:)hehe. Svo var Bjössi í Grindavíkinni á aðfangadag og ég verð í Hafnarfirðinum á gamlárskvöld...fagna nýju ári með hinni nýju viðbót við familíuna mína:)

En slysasögurnar á þessu ári eru svo sem ekkert miklar en svona einkennist árið hjá mér:
Jan-VEIK
Feb-VEIK
Mars-VEIK
Apríl-VEIK
Maí-VEIK
Júní-VEIK
Júlí-VEIK
Ágúst-VEIK
Sept-VEIK, send inná spítala!
Okt-VEIK
Nóv-VEIK
Des-VEIK
Þindarslit, bakflæði og ýmislegt fleira. Svaka spennó en það er  nú allt að lagast núna!


En ég þakka allt liðið og gott á liðnu ári. Hafið það gott um jól og áramót.

IMG_1263.jpg image by bjozzinn_2007

IMG_1238.jpg image by bjozzinn_2007

IMG_1228.jpg image by bjozzinn_2007

IMG_1226.jpg image by bjozzinn_2007

DSC01930.jpg image by bjozzinn_2007

DSC01912.jpg image by bjozzinn_2007

DSC01923.jpg image by bjozzinn_2007

DSC01888.jpg image by bjozzinn_2007

DSC01876.jpg image by bjozzinn_2007

koma fleiri myndir bráðlega!!

Over and Out- The SVANHILDUR-Gloop
26. desember 2007 klukkan 01:00
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
1 athugasemd
23desember

Senn koma jólin...lalalallalaallalalal

Jæja þá er komið að því. Jólin eru á næsta leyti og er ég nú bara guðs lifandi fegin að vera búin með allt saman. Við Bjössi kláruðum jólagjafirnar síðustu helgi....eða a.m.k ég, hann var e-h að ströggla við að kaupa mína í gær með góðri hjálp Birnu mágkonuBrosandi En Bjössi átti í miklum erfiðleikum þetta árið því hann hefur alltaf gefið mér skartgripi og það var víst á planinu að hann myndi biðja mín á aðfangadag en þessi elska gat víst bara ekki beðið lengur! Ekki finnst mér það leiðinlegt, þetta var alveg fullkominn dagur í alla staði sem hann gerði það. En það er eitt slæmt við það, ég hef ekki hugmynd um hvað ég fæ frá honum!!? En ég er ekki að átta mig á því hvað það er virkilega stutt í jólin...maður hefur alltaf verið að bíða eftir jólunum í rauninni en þetta árið var eh svo mikið að gera! Yndislegt að setja upp jólatré í fyrsta skipti og skreyta og svona....bara alveg eftir manns eigin hentisemi. Það er reyndar eitt leiðinlegt við þessi jól og það er að hún Erla vinkona er að yfirgefa klakan á ný. Hún er að fara sem AU-PAIR til Svíþjóðar. Fer á fimmtudaginn næstkomandi og verður í hálft ár....það er svo sem ekkert svo langt. Við erum a.m.k strax farnar að spá í hvenær ég eigi að koma út  til hennar og þá er víst algjört skilyrði hjá okkur pjásum að fara á James Blunt tónleika! Vá hvað það yrði geggjað!

En ég hef nú ósköp lítið að segja vildi bara setja smá innlögn fyrir jólin. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vonandi hafið þið það sem allra best yfir hátíðirnar.

KV. frá stelpunni sem er að bíða eftir jólunumSaklaus
DSC01973-1.jpg picture by bjozzinn_2007
23. desember 2007 klukkan 11:01
Svanhildur Guðbjörg Þorgeirsdóttir
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Konfektkassi...

Ég elska konfekt en lífið er eins og konfektkassi maður veit aldrei hvernig mola maður mun fá....því elska ég lífið :D

Leit

Könnun

Hvert skal ferðinni haldið næsta sumar?